Endurfundirnir

Hæ allir,
þetta voru hinir glæsilegustu endurfundir og takk fyrir skemmtunina :) Myndirnar frá mér eru komnar inn í tengla til vinstri eftir fjölda áskorana úr öllum áttum :)

Bestu kveðjur,
Vala


Vel heppnað!

Snilldar samkoma var þetta, ótrúlega gaman að hitta ykkur öll og mikið djö berum við aldurinn vel ha!!

Hlakka til að sjá myndirnar frá Silju og Völu.  Skora á ykkur með myndavélarnar að skella myndum á bloggið eða myndasíðuna.

Takk fyrir mig

kv.

Jóhann Ingi GGH


Kristjana Birgsdóttir 10-SVG

Nafn og bekkur
Kristjana Birgisdóttir 10. SVG
Vinna:
Er að vinna hjá Ístak... hjálmur og stáltáskór... ;)  
Skóli:
Tæknifræðingur frá DTU í DK... flutti til baka í fyrra eftir 5 ára dvöl hjá herraþjóðinni (ætti maður ekki bara að fara aftur til baka)
Framtíðardraumar:
humm.. vinna mig upp... borga skuldir, verða verkfræðingur og eignast sumarbústað
Hjúskaparstaða:
Alltaf sami kallin hjá mér, erum búin að vera saman i í 12 ár og ekki fer hann neitt, þar sem að við erum ekki gift. " börn strákur og stelpa...
Samband við Víðó:
Kolla...

Örvar Þór Guðmundsson SÞ



 
Vinna:
Viðskiptastjóri í Prentmet.
Er á mínu 14. starfsári og á einhver 40 ár eftir af mínum starfssamningi :þ
 
Skóli:
Alltaf verið illa við námsbækur, en kláraði þó grafíska miðlun frá Iðnskólanum í Rvk ásamt sveinsprófi fyrir nokkrum árum.
 
Framtíðardraumar:
Ekkert panic. Lifa lífinu lifandi á meðan maður er lifandi. Erfitt að fara gera eitthvað mót þegar maður er steindauður.
Flórída + Spánn ca 5-6 vikur á ári, þá er kallinn helvíti góður.
 
Hjúskaparstaða:
Giftur í rúm tvö ár. Eigum tvo flotta stráka saman. Matthías Mána 5. ára og Daníel Darra 3. ára.
Búum í vallarhverfinu í Hafnarfirði og munum ALLTAF búa í Hafnarfirði :p
 
Samband við Víðó:
Er að kenna Halla Sturlu og Tjörva Ólafs handbolta með bumbuliði Hauka.
Vigfús er svo búinn að vinna með mér í 13 ár.
Pínu samband við Þóru Helga.
 
Over...

Vantar emaila á þessa aðila

Magnús Óskarsson

Sigríði Kamilu Ágústsdóttur

Guðlaug Róbertsson

Stefán Reynisson

Ingibjörg Fanney Pálsdóttir
Jón Snorri Guðmundsson
Sigríður María Snæbjörnsdóttir

Sveinbjörn Þorsteinsson

 


Ekki allir eru skráðir á ja.is

Það vantar email adressur á eftirfarandi aðila í 10-GGH 

Sigrúnu Magnúsdóttur

Sigurð Þór Guðmundsson

Sólveigu Jónsdóttur 

Kveðja Kitty


Skútan er salurinn

Þar sem að ég hef ekki haft svo mikið að gera í vinnunni í dag Blush hafði ég samband við skútuna, takk Helga.

Er ég búin að taka frá laugadaginn 4 oktober fyrir okkur.

Þar sem að þetta er salur með mat, þurfa lámark 60 manns að koma að borða. Maturinn kostar ca 4500kr en á eflaust eftir að hækka.(eins og allt annað núna) en við þurfum ekki að borga fyrir salinn. Grin

Þarna er bar, hljóðkerfi, skjávarpi og allt til annað sem að við þurfum til að gera kvöldið skemmtilegt.

p.s. þeir eru með opið til kl 3 og jafnvel lengur ef að við erum þæg og góð.

Svo núna vantar, skemmtanastjóra, tónlistastjóra, dyraverði(til að henda fulla fólkinu út), gjaldkera(hver er að vinna í banka og er fljótur að stemma af innborganir)

kveðja Kitty, Kolla og Silja


Hvaða salir eru í boði í HF

Okkur vantar upplýsingar um sali sem eru í boði í HF.

Bjarkarsalurinn(100 manns)

Hraunholt

Gaflinn

Haukasalurinn(of stór)

Ef að þið þekkið aðra sali, sem eru í boði í HF megið þið setja þá í kommentakerfið.

 


Bólið

1

Hver man ekki eftir "BÓLINU"

Allavega ef að þið lumið á myndum sem að þið getið skannað inn og sent...  setjum við inn á Flikr

Kv Kitty


Vantar myndir og fólk til að hjálpa við re-union

Vantar myndir til að setja á veraldarvefinn svo árgangurinn okkar fái þá athygli sem að hann á skilið.

Einnig vantar okkur fleiri sem að til eru að hjálpa með skipulag á 15 ára afmæli okkar...

Endilega hafa samband á vidistadaskoli1977@yahoo.com skoða reglulega...

Kveðja Kristjana, Kolla og Silja

 


prufa

prufa

Um bloggið

Viðistaðaskoli

Höfundur

Allir
Allir
Árgangur 1977 í Viðistaðaskóla. Kitty, Kolla og Silja

Færsluflokkar

Bloggvinir

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Spurt er

Hvenær ætti að halda reunion

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • kjaftæði11
  • kjaftæði3
  • 1
  • 10.þm
  • 10.sþ

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 6996

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband